Það er nú frekar langt síðan seinast enda er ég enginn hörku
bloggari.... Líka þegar að fólk er nennir ekki að
kommenta

En jamm það var nú djammað um helgina kannski
einum of mikið á föstudaginn en ég skemmti mér samt ekkert smá vel

Já krakkar mínir haldið ekki að mín sé ekki að fara að
flytja til Spánar í ágúst eða það er um 95% líkur, fara að vinna á
bar og læra Spænsku og sona

Já ég og yndið mitt hún Þórey
ákváðum bara að fara saman þetta verður bara gaman

Og hvað á svo að gera í páskafríinu ohhh mér er byrjað að finnast
súkkulaði ekkert spes þannig að ég get víst ekki fengið mér
páskaegg en langar samt í páskaegg það er eitthvað svo asnalegt að
fá sér ekki páskaegg

Jæja núna ætla ég að bera fram spurningu sem að ég var mjög mikið
að velta fyrir mér í gær vegna þess að ég og Þórey höfðum ekkert að
gera hvað er eijinlega hægt að gera á Íslandi á kvöldin annað en að
fara á kaffihús og keyra um, jú ég meina svo er alltaf billiard og
keila en hvað annað ekki neitt eða hvað ????????????
Ég meina ekki geturu farið á barinn og keypt þér kokteil á mánudegi
þá ert þú fyllibytta og svo er það líka ekkert smá dýrt

.... En
krakkar mínir þetta verður annað líf út á Spáni vúhú

En
later ég er farinn að kaupa mér myndavél svo ég geti tekið fullt af
fallegum myndum til að taka með mér út